Hugtakasafn þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins
Hugtakasafn : Eitt hugtak
- ÍSLENSKA
- tilkynningarskylda
- ENSKA
- notification requirement
- Svið
- lagamál
- Dæmi
-
[is]
Skilyrðin fyrir því að fjárfestingaraðstoð sé undanþegin tilkynningarskyldunni ættu að miða að því að takmarka röskun á samkeppni sem myndi grafa undan jöfnum samkeppnisskilyrðum á innri markaðnum, einkum með því að tryggja að fjárhæð aðstoðarinnar sé hæfileg. Til að teljast hæfileg þarf fjárfestingaraðstoð að uppfylla tvö skilyrði.
- [en] The conditions for the exemption of investment aid from the notification requirement should aim at limiting distortions of competition that would undermine a level playing field in the internal market, in particular by ensuring the proportionality of the aid amount. In order to be proportionate, investment aid should fulfil two conditions.
- Rit
-
[is]
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1084 frá 14. júní 2017 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 651/2014 að því er varðar aðstoð vegna grunnvirkja hafna og flugvalla, tilkynningarmörk fyrir aðstoð vegna menningar og varðveislu menningararfleifðar og aðstoð vegna íþróttagrunnvirkja og fjölnota tómstundagrunnvirkja og svæðisbundin rekstraraðstoðarkerfi á ystu svæðum og breytingu á reglugerð (ESB) nr. 702/2014 að því er varðar útreikning á aðstoðarhæfum kostnaði
- [en] Commission Regulation (EU) 2017/1084 of 14 June 2017 amending Regulation (EU) No 651/2014 as regards aid for port and airport infrastructure, notification thresholds for aid for culture and heritage conservation and for aid for sport and multifunctional recreational infrastructures, and regional operating aid schemes for outermost regions and amending Regulation (EU) No 702/2014 as regards the calculation of eligible costs
- Skjal nr.
- 32017R1084
- Orðflokkur
- no.
- Kyn
- kvk.
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.