Hugtakasafn þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins
Hugtakasafn : Eitt hugtak
- ÍSLENSKA
- aðflugsreitur
- ENSKA
- approach area
- Svið
- flutningar (flug)
- Dæmi
-
[is]
Þjálfun á jörðu niðri. Flugrekandi skal sjá til þess að á fyrsta þjálfunarnámskeiðinu á jörðu niðri í starfrækslu í lélegu skyggni skuli a.m.k. fjallað um:
1) eiginleika og takmarkanir blindlendingarkerfis og/eða örbylgjulendingarkerfis,
2) eiginleika sjónrænu leiðsögutækjanna,
3) eiginleika þoku,
4) starfshæfni og takmarkanir viðkomandi flugvélakerfis,
5) áhrif úrkomu, íssöfnunar svo og vindhvarfa og ókyrrðar í lítilli hæð,
6) áhrif sem tilteknar bilanir í flugvél geta haft,
7) notkun og takmarkanir kerfa til að meta flugbrautarskyggni,
8) meginreglur krafna um hindranabil,
9) greiningu bilunar í búnaði á jörðu og ráðstafanir sem gera þarf í framhaldi af því,
10) verklag og varúðarráðstafanir sem gera skal, að því er varðar hreyfingar á jörðu niðri þegar flugbrautarskyggni er 400 m eða þar undir, og annað verklag sem nauðsynlegt er að viðhafa við flugtak í minna en 150 m skyggni (200 m fyrir flugvélar í D-flokki),
11) mikilvægi ákvörðunarhæðar, sem byggð er á ratsjárhæðarmælum, og áhrif af sniði landslags í aðflugsreit á ratsjárhæðarmælingar og sjálfvirk aðflugs-/lendingarkerfi, ... - [en] Ground Training. An operator must ensure that the initial ground training course for Low Visibility Operations covers at least:
1) The characteristics and limitations of the ILS and/or MLS;
2) The characteristics of the visual aids;
3) The characteristics of fog;
4) The operational capabilities and limitations of the particular airborne system;
5) The effects of precipitation, ice accretion, low level wind shear and turbulence;
6) The effect of specific aeroplane malfunctions;
7) The use and limitations of RVR assessment systems;
8) The principles of obstacle clearance requirements;
9) Recognition of and action to be taken in the event of failure of ground equipment;
10) The procedures and precautions to be followed with regard to surface movement during operations when the RVR is 400 m or less and any additional procedures required for take-off in conditions below 150 m (200 m for Category D aeroplanes);
11) The significance of decision heights based upon radio altimeters and the effect of terrain profile in the approach area on radio altimeter readings and on the automatic approach/landing systems; - Rit
-
[is]
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 8/2008 frá 11. desember 2007 um breytingu á reglugerð ráðsins (EBE) nr. 3922/91 að því er varðar sameiginlegar tæknikröfur og stjórnsýslumeðferð sem gilda um flutningaflug
- [en] Commission Regulation (EC) No 8/2008 of 11 December 2007 amending Council Regulation (EEC) No 3922/91 as regards common technical requirements and administrative procedures applicable to commercial transportation by aeroplane
- Skjal nr.
- 32008R0008
- Orðflokkur
- no.
- Kyn
- kk.
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.