Hugtakasafn þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins
Hugtakasafn : Eitt hugtak
- ÍSLENSKA
- almennt útboð
- ENSKA
- offer to the public
- Svið
- fjármál
- Dæmi
-
[is]
Þegar flokkur verðbréfa hefur verið tekinn til viðskipta á skipulegum markaði fá fjárfestar áframhaldandi upplýsingar frá útgefanda samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 og tilskipun 2004/109/EB. Þörf fyrir fulla lýsingu er því ekki eins brýn við síðari almenn útboð eða töku til viðskipta á skipulegum markaði af hálfu slíks útgefanda.
- [en] Once a class of securities is admitted to trading on a regulated market, investors are provided with ongoing disclosures by the issuer under Regulation (EU) No 596/2014 of the European Parliament and of the Council and Directive 2004/109/EC. The need for a full prospectus is therefore less acute in cases of subsequent offers to the public or admissions to trading on a regulated market by such an issuer.
- Rit
-
[is]
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/1129 frá 14. júní 2017 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði og um niðurfellingu á tilskipun 2003/71/EB
- [en] Regulation (EU) 2017/1129 of the European Parliament and of the Council of 14 June 2017 on the prospectus to be published when securities are offered to the public or admitted to trading on a regulated market, and repealing Directive 2003/71/EC
- Skjal nr.
- 32017R1129
- Athugasemd
-
Orðið ,offer´ er ýmist no. eða so. enda þekkist hvort tveggja nafnorðið ,útboð´ og sögnin að ,bjóða út ...´. Sbr. færslur eins og public offer = almennt úboð og offer to the public = bjóða út á almennum markaði.
- Aðalorð
- útboð - orðflokkur no. kyn hk.
- Önnur málfræði
- nafnliður
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.